Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

hörkuleikur en lítil fyrirstaða

Chelsea tekur þetta nokkuð létt. John Arne Rise skorar sennilega ekki í þessum leik.Við  höfum ekki tapað á heimavelli okkar í ótrúlegan tíma en það hlýtur samt að styttast í það en það verður ekki í kvöld.Við vinnum þennan leik 2-1 Torres skorar fyrsta en J.Cole jafnar og Anelka kemur okkar mönnum yfir
mbl.is Byrjunarlið Chelsea og Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

bræla

það getur ekki verið að það sé komin bræla einu sinni enn.Jæja ég vinn þá bara í bátnum á morgun stendur til að hann fari til Noregs á miðvikudaginn en sennilega dregst það í viku.Ég er svona að vona að ég nái að fara uppá Akranes og ná í hinn bátinn áður en ég fer með gamla suður

Stig af Man.utd

Nú er staðan 81-81 og bæði lið eiga því jafna möguleika á sigri,ég er samt á því að Chelsea endi sem meistarar þetta árið.Þessi læti sem voru eftir leik liðanna eru ekki góð og verða örugglega skoðuð og sektir held ég óumflanlegar því svona á ekki að gerast.Ætti jafnvel bara að taka stig af M.utd fyrir þessi læti

Chelsea-M.utd

1-0 já það er staðan í hálfleik liðanna fyrri hálfleikur var bara einstefna og M.utd komust varla yfir miðju en seinni hálfleikur eftir og allt opið en ef mínir menn vinna þennan leik þá er fjör til síðustu mín í síðasta leik og megi það verða svo

áfram Chelsea


sjóferðir Úllu

fór á laugardag með 48 bala,sunnudag með 36 bala mánudag með 24 þriðjudag með 24 miðvikudag með 36 fimmtudaginn var ég í fríi enda komið sumar,föstudag fór ég svo með 24.Þetta eru 192 balar og aflinn rétt rúm 20 tonn.Meðalverð á þorski 259kr 9.936kg.Meðalverð á ýsu 159kr 6.132kg.Svo fóru 1.527 kg á hafró meðalverð á þeim ósköpum voru152kr.Það svo svona dass af steinbít,löngu,keilu og karfa en þess má geta líka að karfinn fór allur líka á hafró í gær fínasti karfi en verðið 12 kr pr kg.

 


sjóferð á Úllu

Fór í dag vorum 3 um borð því ég fór með 48 bala afli ca 3,8 t þorskur og 1,3 t ýsa 0,5  t drasl.mjög gott verð þannig að þetta ver bara flottur dagur er að fara aftur núna kl 12 með 42 bala

dekkjaskipti og verð samanburður

Mér þætti fróðlegt að vita hvað fólk er að borga fyrir dekkjaskipti á hinum ýmsu stöðum á landinu.

Ég lét ballesera 4 dekk undir jeppanum 37" í r.vík hjá Sólningu og það kostaði 13.000 krónur rétt tæpar þó,þegar ég hafði keyrt frá R.vík til Ólafsvíkur þá var balleseringin farin af afturdekkjunum,svo góð voru nú þau vinnubrögð en ég fór svo í morgun á dekkjaverkstæði hér á Ólafsvík og þeir gerðu sama hlut reyndar bara afturdekkin en það kostaði bara 3.000.Ég spir einfaldlega í hverju liggur þessi verðmunur?Og gaman væri að fá að heyra frá öðrum um hvaða verð er í gangi því nú er sú vertíð á fullu.


Helgin,frúin og vinnan

ÆÆÆ

Ég verð einn heima alla helgina (snökt)Konan farin norður á Ólafsfjörð með gersemarnar sínar sem eru svona leirdót lampar,englar plattar,kirkjur svo eitthvað sé nefnt mjög vinsæl fermingargjöf.Já hún er seig hún Bylgja mín hreppti 1. sætið í besta kona heims daginn sem ég hitti hana,svo er hún vinnuþjarkur mikill já eða eiginlega bara beitningavél,beitir 8 bala á dag og meir ef á þarf að halda og leirar svo í fríum.Skil bara ekki hvaðan hún fær alla þessa orku því hún segir mig mesta orkuþjóf sem hún hafi hitt.Allavega ef ofvirkni hefði verið til þegar ég var krakki þá hefði þurft að finna upp nýtt nafn á mína hegðun en pabbi og mamma kölluðu þetta nú bara óþekkt.En nóg um það ætlunin er að vera útá sjó alla helgina já eða þangað til næsta bræla kemur sem verður væntanlega fljótlega eftir helgi.Vonandi get ég farið með 150-200 bala og náð mér í ca 15 tonn af þorski og ýsu.Ætlaði í nótt en hann náði sér ekkert niður fer í kvöld með 42 bala og líka annað kvöld svo er blessað fæðingarorlofið búið og mar getur farið að róa venjulega róðra og hætt að styrkja n1 svona svakalega.


Blue is the color

Chelsea vann góðan sigur í kvöld og er aftur farið að anda ofaní hálsmálið á M.utd sem þeir ætla sér að vinn og já taka þá í svona létta kennslustund.Ætli mar taki sér bara frí og horfi á úrslitaleikinn.Mikið rosalega er þetta nú skemmtilegra þegar spennan er allt til lokaflauts í síðustu umferð.
mbl.is Chelsea hirti þrjú stig á Goodison Park
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Davíð Þorvaldur Magnússon
Davíð Þorvaldur Magnússon
ferskur og fallegur,ofvirkur tappi sem getur ekki setið og gert ekki neitt

hvaða lið vinnur deildina

hver vinnur ensku deildina í ár
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband